|
|
28. desember 2019 |
|
Fyrsti kennsludagur eftir jólafrí |
|
Starfsfólk Tónlistarskóla Kópavogs óskar nemendum, aðstandendum þeirra og
velunnurum skólans farsældar á nýju ári og þakkar samstarfið á árinu 2018.
Kennsla að loknu jólaleyfi hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 6. janúar
2020.
|
|
|
|
|
16. desember 2019 |
|
Jólatónleikar |
|
Í þessari viku verða sex jólatónleikar í Salnum. Aðgangur að tónleikunum
er ókeypis og eru allir velkomnir:
- Þriðjudaginn 17. desember kl. 17:15 munu nemendur leika á gítar,
sembal, þverflautu og blokkflautur.
- Þriðjudaginn 17. desember kl. 18:45 munu nemendur leika á ýmis
hljóðfæri.
- Þriðjudaginn 17. desember kl. 20:15 munu nemendur leika á ýmis
hljóðfæri.
- Miðvikudaginn 18. desember kl. 17:15 munu nemendur syngja og leika á
ýmis hljóðfæri.
- Miðvikudaginn 18. desember kl. 18:45 munu nemendur leika á ýmis
hljóðfæri.
- Miðvikudaginn 18. desember kl. 20:15 munu nemendur leika á ýmis
hljóðfæri.
|
|
|
|
|
10. desember 2019 |
|
Kennsla fellur niður vegna óveðurs |
|
Að teknu tilliti til viðvarana vegna veðurs og tilmæla frá bæjaryfirvöldum verður öll kennsla felld niður í Tónlistarskóla Kópavogs eftir kl. 13:00 í dag,
þriðjudag.
|
|
|
|
|
4. desember 2019 |
|
Aðventutónleikar í Salnum á morgun |
|
Aðventutónleikar verða haldnir í
Salnum á morgun, fimmtudaginn 5. desember og hefjast þeir kl. 18:00.
Á tónleikunum leika m.a. fiðluhópur og strengjasveit yngri nemenda.
Efnisskráin er fjölbreytt og eru allir velkomnir. |
|
|
|
|
30. nóvember 2019 |
|
Aðventutónleikar í Salnum á mánudag |
|
Aðventutónleikar verða haldnir í
Salnum mánudaginn 2. desember og hefjast þeir kl. 20:00.
Flytjendur á tónleikunum eru málmblástursnemendur og ber
efnisskráin það með sér að aðventan er gengin í garð. Allir eru velkomnir. |
|
|
|
|
30. nóvember 2019 |
|
Jólatónleikar Suzukinemenda í Salnum 1. desember |
|
Suzukinemendur koma fram á tvennum jólatónleikar í Salnum
á morgun, sunnudaginn 1. desember.
Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 11 en þeir síðari kl. 12:30. Á efnisskrá er
fjölbreytt tónlist. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir
velkomnir. |
|
|
|
|
25. nóvember 2019 |
|
Skólatónleikar rytmískrar deildar í Salnum á þriðjudag |
|
Skólatónleikar verða haldnir í Salnum
á morgun, þriðjudaginn 26. nóvember.
Flytjendur á tónleikunum eru nemendur rytmískrar deildar skólans og er
efnisskráin fjölbreytt. Tónleikarnir hefjast kl. 18:00. |
|
|
|
|
17. nóvember 2019 |
|
Skólatónleikar í Salnum á mánudag og þriðjudag |
|
Tvennir skólatónleikar verða haldnir í Salnum í vikunni.
Þeir fyrri verða mánudaginn 18. nóvember kl. 20:00. Síðari tónleikarnir
verða þriðjudaginn 19. nóvember kl. 18:00.
Á báðum tónleikunum munu
koma fram nemendur á ýmis hljóðfæri. Efnisskrá tónleikanna verður fjölbreytt eftir því. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. |
|
|
|
|
17. nóvember 2019 |
|
Píanótónleikar í Kefas mánudag |
|
Á morgun, mánudaginn 18. nóvember, kl. 18:00, munu
nemendur í píanóleik, sem tóku þátt í Píanóplús námskeiði undir leiðsögn
Nínu Margrétar Grímsdóttur, ljúka verkefninu með tónleikum í Kefas,
Fagraþingi 2a. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. |
|
|
|
|
12. nóvember 2019 |
|
Skólatónleikar í Salnum á fimmtudag |
|
Skólatónleikar verða haldnir í Salnum fimmtudaginn
14. nóvember kl. 18:00. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og munu nemendur
á ýmis hljóðfæri koma fram. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. |
|
|
|
|
10. nóvember 2019 |
|
Skólatónleikar í Salnum á mánudag |
|
Skólatónleikar verða haldnir í Salnum mánudaginn
11. nóvember kl. 20:00. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og munu nemendur á ýmsum námsstigum koma fram. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. |
|
|
|
|
6. nóvember 2019 |
|
Skólatónleikar í Salnum í dag |
|
Skólatónleikar verða haldnir í Salnum
í dag, miðvikudaginn 6. nóvember kl. 18:00. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. |
|
|
|
|
5. nóvember 2019 |
|
TKTK: Tónleikar í Kefas á laugardag |
|
Þriðju tónleikar vetrarins í Tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Kópavogs verða haldnir í
Fríkirkjunni Kefas, Fagraþingi 2a, laugardaginn 9. nóvember næstkomandi kl. 13:00. Flytjendur eru Guðríður St. Sigurðardóttir píanóleikari, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari og Rúnar Óskarsson klarinettleikari. Á efnisskrá eru verk eftir Nino Rota og Johannes Brahms.
Tónleikarnir erum um klukkustund að lengd, aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. TKTK, Tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Kópavogs, er styrkt af Kópavogsbæ.
|
|
[ Meira ]
|
|
|
5. nóvember 2019 |
|
Skemmtileg flautuhelgi á Norðurlandi |
|
Helgina 1.-3. nóvember sl. tóku 25 nemendur og fjórir
flautukennarar frá Tónlistarskóla Kópavogs þátt í flautunámskeið
sem fór fram í samvinnu skólans og Tónlistarskólans á Akureyri, Tónlistarskóla Eyjafjarðar,
Tónlistarskóla Húsavíkur og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Alls voru þátttakendur um 60 talsins.
Á námskeiðinu var mest áhersla
lögð á fjölbreytt samleiksverkefni, en einnig var kennt
yoga og haldinn masterklass. Þá var farið í ratleiki, sund,
Jólahúsið heimsótt og margt fleira til gamans gert.
Foreldrafélag Tónlistarskólans á Akureyri sá um veitingar nyrðra þar sem hver veislan
tók við af annarri.
Námskeiðinu lauk með tónleikum í
Laugarborg í Eyjafirði um hádegisbil á sunnudeginum.
Þar kvöddust þáttakendur reynslunni ríkari eftir skemmtilega helgi. Myndin hér
að ofan er tekin við það tækifæri.
|
|
|
|
|
27. október 2019 |
|
Skólatónleikar í Salnum |
|
Skólatónleikar verða haldnir í Salnum þriðjudaginn 29. október kl. 18:00. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og
munu nemendur á ýmsum námsstigum koma fram. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. |
|
|
|
|
20. október 2019 |
|
Vetrarfrí á mánudag og þriðjudag |
|
Vakin er athygli á því að vetrarfrí verður í tónlistarskólanum mánudaginn 21. október og þriðjudaginn 22. október.
|
|
|
|
|
17. október 2019 |
|
Pina Napolitano, tónleikar og masterklass |
|
Ítalski píanóleikarinn Pina Napolitano heldur tónleikar og masterklass á
vegum Tónlistarskóla Kópavogs sunnudaginn 20. október 2019. Tónleikarnir verða
kl. 13 og eru þeir haldnir í sal Tónlistarskóla Garðabæjar, Kirkjulundi 11,
Garðabæ. Á efnisskrá tónleikanna eru Variationen op. 27 eftir Anton Webern,
Intermittences eftir Elliott Carter og Sónata op. 110 eftir L. v. Beethoven.
Í framhaldi af tónleikunum mun Pina halda masterklass fyrir nemendur
skólanna tveggja.
Pina Napolitano hefur hlotið lof gagnrýnenda víða
um heim fyrir leik sinn. Ásamt reglulegu tónleikahaldi hefur hún starfað m.a.
sem kennari við Conservatorio Santa Cecilia í Róm, Intstituto Statale
Superiore í Teramo og Conservatory of Vibo Valentia. Oft er falast eftir henni
til að sitja sem dómari í alþjóðlegum píanókeppnum og hún heldur reglulega
masterklassa í Evrópu og Rússlandi. Pina Napolitano undirbýr um þessar mundir
sinn fjórða einleiksdisk sem er væntanlegur á næsta ári.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir nemendur skólans hvattir til að sækja þá. Masterklassinn er einnig opinn áheyrendum.
|
|
|
|
|
13. október 2019 |
|
Skólatónleikar í Salnum |
|
Skólatónleikar verða haldnir í Salnum á morgun, mánudaginn
14. október kl. 20:00. Á tónleikunum munu koma fram píanóleikarar á ýmsum námsstigum. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. |
|
|
|
|
3. október 2019 |
|
TKTK: Tónleikar MOVE í Hjallakirkju á laugardag |
|
Á laugardaginn kl. 13 verða tónleikar með djasskvartettinum MOVE. Óskar Guðjónsson stofnaði
kvartettinn til að takast á við hið sígildasta form djasstónlistar; lúður með píanótríói. Undanfarið ár
eða svo hefur kvartettinn haft fastan æfingartima alla þriðjudaga þar sem viðfangsefnið er leitin að eigin nálgun
á hið hefðbundna form, hvort sem leikin eru sígild djasslög eða eigin smíðar.
Meðlimirnir eru allir þekktir í íslensku tónlistarlífi, þar sem þeir hafa hver um sig skapað sér sérstöðu með
persónulegri nálgun á fjölbreytt viðfangsefni. Leiknir verða standardar, bestu lög gullaldarára djassins auk frumsamins efnis.
Hljómsveitina skipa: Eyþór Gunnarsson píanóleikari,
Matthías Hemstock trommari, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari og Óskar Guðjónsson saxófónleikari.
Tónleikarnir eru um klukkustund að lengd, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
TKTK, Tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Kópavogs er styrkt af Kópavogsbæ.
|
|
|
|
|
24. september 2019 |
|
Dagskrá ERASMUS+ verkefnis í vikunni |
|
Þessa dagana eru tónsmíðanemendur og -kennari frá
Piteå-tónlistarháskólanum í Norður-Svíþjóð gestir Tónlistarskólans. Þeir
taka þátt í ERASMUS+ verkefni með kennurum og nemendum skólans.
Í tengslum við heimsóknina verða tveir fyrirlestrar haldnir í Salnum, sá
fyrri miðvikudaginn 25. september og sá síðari fimmtudaginn 26. september,
og laugardaginn 28. september verða tónleikar í Salnum.
Fyrirlesari
miðvikudaginn 25. september (kl. 17-19 í Salnum) er Fredrik Högberg.
Fredrik er tónskáld og kennari við Piteå-tónlistarháskólann en hann skrifar
tónlist þvert á tónlistarstíla. Hann ætlar að fjalla um tónlist sína og
einnig um notkun "multimedia" í tónsköpun. Fyrirlesari fimmtudaginn
26. september (kl. 17-19 í Salnum) er Hilmar Þórðarson.
Hilmar hefur undanfarin ár dvalist í Noregi við tónsköpun sína auk annara
verkefna. Hann hlaut nýverið stóran styrk í Noregi til að þróa tækni sem
gerir stjórnendum kleift að hafa áhrif á flutning úr tölvum á sama tíma og
þau stjórna öðrum “lifandi” flytjendum. Laugardaginn 28. september
verða stuttir tónleikar í Salnum (kl. 12) þar sem flutt
verða rafverk sem sænsku og íslensku nemendurnir hafa samið í vikunni.
Skólinn hvetur nemendur og kennara til að mæta á fyrirlestrarna og
tónleikana.
|
|
|
|
|
17. september 2019 |
|
Fyrstu TKTK tónleikar starfsársins |
|
Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröð kennara TK verða haldnir laugardaginn 21. september
kl. 13 í Fríkirkjunni Kefas, Fagraþingi 2a. Þar munu Þórunn Elfa Stefánsdóttir, sópransöngkona, og Julian Hewlett, píanóleikari,
flytja bandarísk þjóðlög, sönglög og aríur. Tónleikarnir eru um klukkustund að lengd, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. TKTK, Tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Kópavogs er styrkt af Kópavogsbæ.
|
|
|
|
|
21. ágúst 2019 |
|
Skólasetning |
|
Tónlistarskóli Kópavogs verður settur í Salnum föstudaginn 23. ágúst nk. kl. 17:00.
Nemendur eru beðnir um að skila stundaskrám sínum úr grunnskólum eða framhaldsskólum á skrifstofu skólans sem allra fyrst. |
|
|
|
18. júní 2019 |
|
Sumarleyfi |
|
Skrifstofa Tónlistarskóla Kópavogs verður opnuð eftir sumarleyfi miðvikudaginn 7. ágúst 2019.
Skólasetning verður föstudaginn 23. ágúst. |
|
|
|
|
3. júní 2019 |
|
Kammertónleikar - Tengsl tveggja tónlistarheima |
|
Nemendur TK ásamt nemendum úr Conservatioio di Santa Cecilia í Róm halda tvenna tónleika
í vikunni:
- Í Hörpuhorni þriðjudaginn 4. júní kl. 16.00
- Í Salnum, Kópavogi miðvikudaginn 5. júní kl. 19.00.
Tónleikarnir eru afrakstur samvinnuverkefnis Tónlistarskóla Kópavogs og tónlistarháskólans Santa Cecilia í Róm.
Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og er þetta annað tveggja Erasmus+ samstarfsverkefna sem skólinn hefur tekið þátt í í vetur.
Það eru nemendur í framhaldsnámi við TK sem leiða saman hesta sína við nemendur eins virtasta tónlistarháskóla Evrópu og óhætt að segja að árangurinn sé stórkostlegur.
Hópurinn hefur unnið að undirbúningi sl. vetur og hélt tvenna tónleika í Róm í liðinni viku.
Á tónleikunum verður flutt ítölsk tónlist með þátttöku nemenda beggja
skólanna. Á efnisskrá eru:
- Donizetti: Sónata fyrir flautu og píanó
- Rossini: Kattadúettinn
- Rossini: Le
lazzarone
- Rossini: Forleikurinn að Rakaranum frá Sevilla fyrir sexhent píanó
- Rossini: Largo Al Factotum - aría rakarans frá Sevilla
- Casella: Pupazzetti
fyrir fjórhent píanó
- Mirenzi: Tríó og Sextett - frumflutningur á Íslandi
- Savina: Due Novelle fyrir flautu, kontrabassa og hörpu
- Vivaldi: Konsert
fyrir tvær flautur og strengjasveit
- Puccini: I Crisantemi fyrir
strengjasveit
- Berio: Þjóðlög.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir.
|
|
|
|
|
22. maí 2019 |
|
Skólaslit |
|
Skólaslit og afhending einkunna verða
þriðjudaginn 28. maí nk. og hefst athöfnin í Salnum
kl. 17:00. |
|
|
21. maí 2019 |
|
Rytmískir skólatónleikar í Salnum |
|
Nemendur rytmískrar deildar skólans mun
koma fram á skólatónleikum í Salnum í dag,
þriðjudaginn 21. maí, og hefjast tónleikarnir kl.
19:00. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir
velkomnir. |
|
|
20. maí 2019 |
|
Vortónleikar tónversnemenda |
|
Í dag, mánudaginn 20. maí, verða
vortónleikar tónversnemenda haldnir í Salnum og hefjast
þeir kl. 19:30. Á tónleikunum verður frumfluttur
fjöldi nýrra tónsmíða nemenda. Aðgangur er ókeypis
og allir eru velkomnir. |
|
|
20. maí 2019 |
|
Maraþondagar í Kefas |
|
Þessa viku verða maraþontónleikar í
Kefas frá mánudegi til föstudags. Tónleikar eru á
klukkustundarfresti síðdegis alla dagana og munu flestir
hljóðfæranemendur skólans koma fram einhvern daginn.
Í dag, mánudag, leika nemendur á ýmis hljóðfæri, á
morgun eru píanónemendur í forgrunni, á miðvikudag er
megináherslan lögð á strokhljóðfæri, á fimmtudag
eru blásarar flestir og á föstudag er röðin komin að
gítarleikurum. Foreldrar og aðrir gestir eru hjartanlega
velkomnir. |
|
|
12. maí 2019 |
|
Framhaldsprófstónleikar Ásláks
Ingvarssonar í Salnum |
|
Þriðjudaginn
14. maí heldur Áslákur Ingvarsson, söngvari,
framhaldsprófstónleika sína frá Tónlistarskóla
Kópavogs. Tónleikarnir eru jafnframt eru síðasti hluti
framhaldsprófs Ásláks við skólann. Tónleikarnir
verða í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs og hefjast kl.
20:00. Kennari hans er Anna Júlíana Sveinsdóttir.
Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Henry Purcell,
Claudio Monteverdi, John Dowland, W.A. Mozart, R.
Schumann, G. Rossini, Pál Ísólfsson og Hjálmar H.
Ragnarsson. Meðleikarar Ásláks eru Helga Bryndís
Magnúsdóttir, píanóleikari, og Guðrún Óskarsdóttir,
semballeikari.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir
velkomnir.
|
|
|
12. maí 2019 |
|
Framhaldsprófstónleikar Sigrúnar Gyðu
Sveinsdóttur í Salnum |
|
Þriðjudaginn
14. maí verða söngtónleikar Sigrúnar Gyðu
Sveinsdóttur. Tónleikarnir eru hluti framhaldsprófs
hennar við Tónlistarskóla Kópavogs. Tónleikarnir
verða í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs og hefjast kl.
18:00. Kennari hennar er Anna Júlíana
Sveinsdóttir.
Á efnisskránni eru m.a. verk eftir J.S. Bach, W.A.
Mozart, R. Strauss, G. Verdi, Þórarin Guðmundsson og
Sigvalda Kaldalóns. Meðleikarar hennar eru Helga
Bryndís Magnúsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir,
Elísabet Waage, Atli Mar Baldursson, Hugrún Helgadóttir
og Sólrún Ylfa Ingimarsdótir.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru
allir velkomnir.
|
|
|
12. maí 2019 |
|
Framhaldsprófstónleikar Ástráðs
Sigurðssonar í Salnum |
|
Mánudaginn
13. maí heldur Ástráður Sigurðsson, píanóleikari,
framhaldsprófstónleika sína frá Tónlistarskóla
Kópavogs. Tónleikarnir eru jafnframt eru hluti
framhaldsprófs hans við skólann. Tónleikarnir verða
í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs og hefjast kl. 20:00.
Kennari Ástráðs er Ingunn Hildur Hauksdóttir.
Á efnisskránni eru verk eftir J.S. Bach, L.v.
Beethoven, C. Debussy, Ph. Glass og Ástráð sjálfan.
Einnig kemur fram Eva Sigurðardóttir sem leikur á
fiðlu.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir
velkomnir.
|
|
|
11. maí 2019 |
|
Vortónleikar forskóladeildar í Salnum |
|
Vortónleikar forskóladeildar verða
haldnir í Salnum á morgun, sunnudaginn 12. maí, kl. 11:00.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. |
|
|
7. maí 2019 |
|
Tónleikar Ísland-Tékkland |
|
|
|
|
27. apríl 2019 |
|
Finnsk ungmennahljómsveit heldur
tónleika |
|
 |
|
Ungmennahljómsveit frá Valkeakoski
í Finnlandi sækir Ísland heim dagana 26. apríl
til 1. maí 2019. Markmið heimsóknarinnar er að
kynna finnska tónlist, að kynnast íslenskri
menningu og tónlistarlífi og að efla tengsl milli
íslenskra og finnskra ungmenna.
Starf finnsku sveitarinnar byggir á
kennsluaðferð sem nefnist Näppäri. Aðferðin
gengur út á það að tónlistarflytendur á
breiðu aldursbili, allt frá byrjendum til
atvinnumanna, leiki saman og er tónlistin útsett
allt eftir getustigi hvers og eins.
Hljómsveitin heimsækir Tónlistarskóla
Kópavogs og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og
heldur tvenna tónleika ásamt sameiginlegri
strengjasveit skólanna. Fyrri tónleikarnir fara
fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ í dag,
laugardaginn 27. apríl kl. 15:00. Mánudaginn 29.
apríl verða seinni tónleikarnir haldnir í
Fríkirkjunni Kefas, Fagraþingi 2a, kl. 20:00. Auk
þess heldur finnski hópurinn tónleika í
Hörpuhorni í Hörpu þriðjudaginn 30. apríl kl.
12:00. Á efnisskránni eru þjóðlagatónlist frá
báðum löndum og verk eftir Sibelius, Kuula,
Rautavaara og Þorkel Sigurbjörnsson.
Aðgangur að tónleikunum þremur er ókeypis og
eru allir hvattir til að mæta. |
|
|
|
22. apríl 2019 |
|
Fyrsti
kennsludagur eftir páska |
|
Kennsla að loknu páskafríi hefst á
morgun, þriðjudaginn 23. apríl. |
|
|
6. apríl 2019 |
|
Brúðkaup Fígarós í Salnum |
|
 |
|
Nemendur söngdeildar munu flytja
óperuna Brúkaup Fígarós eftir Wolfgang Amadeus
Mozart í Salnum mánudaginn 8. apríl og
miðvikudaginn 10. apríl og hefjast sýningarnar
kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Óperan Le nozze di Figaro eins og hún heitir á
frummálinu var frumsýnd í Vínarborg 1. maí
árið 1786. Textann skrifaði hinn bráðsnjalli
Lorenzo da Ponte upp úr gamanleik eftir Caron de
Baumarchais og endurspeglast þar andúð á
yfirstéttinni sem hefur örugglega skírskotað til
tónskáldsins eftir þá reynslu sem Mozart hlaut
í þjónustu erkibiskupsins í Salzburg.
Í þessari uppfærslu er óperan flutt aðeins
stytt og gerist leikurinn á okkar tíma.
Leikstjóri er Anna Júlíana Sveinsdóttir og
tónlistarstjóri og píanóleikari er Aladár Rácz. |
|
 |
|
Frá vinstri: Una Björg
Jóhannsdóttir (Marcellína), Stefán Óskar
Hólmarsson (Bartóló, læknir), Lára Ruth Clausen
(Barbarína), Unnur Hlíf Rúnarsdóttir (Cherúbín),
Heiðrún Ösp Hauksdóttir (Súsanna,
þjónustustúlka greifafrúarinnar), Kristján
Tómas Árnason (Fígaró, þjónn greifans),
Sigrún Gyða Sveinsdóttir (Rósina, greifafrú af
Almaviva), Áslákur Ingvarsson (Almaviva greifi),
Davíð Guðni Halldórsson (Basilíó, söngkennari)
og Jón Pétur Friðriksson (Don Cúrzíó, dómari
og sögumaður). |
|
|
|
24. mars 2019 |
|
Skólatónleikar í Salnum |
|
Skólatónleikar verða haldnir í Salnum
á morgun, mánudaginn 25. mars, kl. 19:30. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. |
|
|
18. mars 2019 |
|
Skólatónleikar í Salnum |
|
Skólatónleikar verða haldnir í Salnum
á morgun, þriðjudaginn 19. mars, og hefjast þeir kl.
18:00. Fram koma hljóðfæra- og söngnemendur á ýmsum
námsstigum. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og
allir velkomnir. |
|
|
16. mars 2019 |
|
Vel heppnaðir svæðistónleikar Nótunnar
í dag |
|
Svæðistónleikar
Nótunnar, uppskeruhátíðar tónlistarskóla 2019 fyrir
Suðurland, Suðurnes og sveitarfélögin umhverfis
Reykjavík, fóru fram í Salnum í Kópavogi í dag.
Haldnir voru tvennir tónleikar, kl. 12:00 og kl. 14:00,
og dagskránni lauk með verðlaunafhendingu kl. 16:00.
Fulltrúar Tónlistarskóla Kópavogs á tónleikunum voru
Seifur Ísak Kjartansson, píanóleikari, Hrefna Vala
Kristjánsdóttir, þverflautuleikari og Áslákur
Ingvarsson, söngvari, auk Ingibjargar Brynju
Finnbjörnsdóttur, Þórhildar Önnu Traustadóttur og
Guðmundar Steins Markússonar sem léku sexhent á
píanó. Öll stóðu þau sig með mikilli prýði og
óskum við þeim til hamingju með frammistöðuna.
Lokahátíð Nótunnar 2019 verður haldin í
Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, laugardaginn 6. apríl
nk. og verður Áslákur Ingvarsson í hópi þeirra sem
þar munu koma fram. |
|
|
11. mars 2019 |
|
Meistaranámskeið Eddu Erlendsdóttur
píanóleikara |
|
Þriðjudaginn 12. mars og mánudaginn 1. apríl
leiðbeinir Edda Erlendsdóttir á meistaranámskeiðum í
píanóleik í Fríkirkjunni Kefas, Fagraþingi 2a, frá
kl. 18 - 21. Edda mun leiðbeina píanónemendum
Tónlistarskóla Kópavogs í mið- og framhaldsnámi.
Leikin verða verk eftir J.S. Bach, Haydn, Beethoven,
Chopin, Debussy og Rossini.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. |
|
|
10. mars 2019 |
|
Tvennir skólatónleikar í Salnum |
|
Tvennir tónleikar verða haldnir á vegum
Tónlistarskólans í vikunni. Fyrri tónleikarnir verða
þriðjudaginn 12. mars kl. 18:00 en síðari
tónleikarnir verða haldnir miðvikudaginn 13. mars kl.
18:00. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir
velkomnir. |
|
|
5. mars 2019 |
|
Gestir frá Póllandi í Kefas |
|
Miðvikudaginn 6. mars 2019 kl. 20 munu góðir gestir
frá Póllandi halda píanótónleika í Kefas,
Fagraþingi 2a.
Jacek Tosik-Warszawiak og Miroslaw Herbowski,
prófessorar frá Krakow, og nemendur þeirra, Ida Nystad
Mogensen, Magnus Wenzel Most (bæði frá Danmörku),
Monika Paluch, Alexandra Szczepanik og Agnieszka Riess,
munu leika fyrir nemendur og kennara.
Leikin verða verk eftir F. Chopin, E. Grieg, T. Kuula,
I. Hannikainen, N. Kapustin, K. Szymanowski og M.
Moszkowski og jafnvel fleiri pólsk tónskáld.
Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Píanónemendur í mið- og framhaldsnámi eru
sérstaklega hvattir til að koma á tónleikana.
Tónleikagestum gefst kostur á að setjast niður með
pólsku gestunum að tónleikunum loknum og spjalla við
þá. |
|
|
3. mars 2019 |
|
Skólatónleikar Nótunnar á morgun |
|
Á morgun, mánudaginn 4. mars, verða
haldnir skólatónleikar í Salnum og hefjast þeir kl.
19:30. Á efnisskrá eru fjölbreytt atriði og koma
nemendur á öllum námsstigum fram. Flytjendur keppa
jafnframt um það að verða fulltrúar skólans á
svæðishátíð Nótunnar sem fram fer í Salnum
laugardaginn 16. mars næstkomandi. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. |
|
|
23. febrúar 2019 |
|
Vetrarfrí á mánudag og þriðjudag |
|
Vetrarfrí verður í Tónlistarskólanum
mánudaginn 25. og þriðjudaginn 26. febrúar nk. og
fellur kennsla niður þá daga. |
|
|
19. febrúar 2019 |
|
Tvennir skólatónleikar í Salnum á
miðvikudag |
|
Tvennir tónleikar verða haldnir í Salnum
á vegum Tónlistarskólans á morgun, miðvikudaginn 20.
febrúar. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 18:00 en þeir
seinni kl. 19:00. Á fyrri tónleikunum koma fram
hljóðfæra- og söngnemendur en á síðari tónleikunum
verða flutt einsöngs- og samsöngsatriði úr
Brúðkaupi Fígarós eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. |
|
|
15. febrúar 2019 |
|
Meistaranámskeið í píanóleik |
|
Laugardaginn
15. febrúar leiðbeinir Peter Máté á
meistaranámskeiði í píanóleik í Fríkirkjunni Kefas,
Fagraþingi 2a, á milli kl. 10 og 13. Peter mun
leiðbeina píanónemendum í mið- og framhaldsnámi úr
Tónlistarskóla Kópavogs. Leikin verða verk eftir J.S.
Bach, Burgmüller, Grieg, Chopin og Moszkowski.
Peter hefur um árabil verið einn fremsti
píanóleikari og kennari á Íslandi. Hann er prófessor
og fagstjóri hljóðfæraleiks við Listaháskóla
Íslands, auk þess sem hann kennir píanóleik við
Menntaskóla í tónlist.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
|
|
|
10. febrúar 2019 |
|
Tvennir skólatónleikar í Salnum |
|
Tvennir tónleikar verða haldnir á vegum
Tónlistarskólans í vikunni. Fyrri tónleikarnir verða
haldnir mánudaginn 11. febrúar kl. 19:30 og síðari
tónleikarnir miðvikudaginn 13. febrúar kl. 18:00.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. |
|
|
31. janúar 2019 |
|
Stórtónleikarnir Viking Barokk í
Langholtskirkju laugardaginn 9. febrúar |
|
Sannkallaðir stórtónleikar fara fram í
Langholtskirkju laugardaginn 9. febrúar næstkomandi kl.
16:00. Fram koma fjórar norrænar barokksveitir í
fremstu röð ásamt tónlistarnemum frá Finnlandi,
Noregi, Svíþjóð og Íslandi. Íslensku nemendurnir í
þessu norræna verkefni eru úr Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar og Tónlistarskóla Kópavogs. Yfirskrift
verkefnisins er „víkingar mæta barokkinu“.
Fyrr í vetur hefur tónleikadagskráin verið flutt
við góðar undirtektir í Stokkhólmi, Helsinki og Osló
með yfir 400 manns á sviðinu í stærstu atriðunum.
Tónleikarnir í Langholtskirkju eru því þeir síðustu
í röð þessa verkefnis.
|
 |
Frá tónleikum í tónlistarhúsinu
í Helsinki 17. nóvember 2018 |
Barokksveitirnar sem koma fram ásamt tónlistarnemunum
eru; Finnska barokksveitin (FiBO), Barokkanerne frá
Noregi, Drottningholms barockensemble frá Svíþjóð og
hin íslenska Symphonia Angelica. Guðmundur Ólafsson
leikari mun leiða áheyrendur í gegnum þessa
víkingaferð um barokkheima.
|
 |
Meðlimir Symphonia Angelica ásamt
tónlistarnemum úr Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar og Tónlistarskóla Kópavogs á
tónleikunum í Helsinki. Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir söngkona, Eyjólfur Eyjólfsson
söngur/langspil og Sigurður Halldórsson
sellóleikari. Mynd Aki Rask. |
|
|
|
20. janúar 2019 |
|
Tónleikar
Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna |
 |
Miðvikudaginn 23. janúar nk. kl. 20:00
heldur Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna tónleika
í Langholtskirkju og eru nemendur og forráðamenn
þeirra hvattir til að láta þennan viðburð ekki fram
hjá sér fara.
Hljómsveitina skipa um 80 tónlistarnemar úr
tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni.
Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Einsöngvari
með hljómsveitinni er Guðfinnur Sveinsson, barítón og
einleikari er Jóhann Gísli Ólafsson,
semballeikari.
Á tónleikunum verða flutt verða eftirtalin verk:
- Carlos Seixas: Sembalkonsert í A-dúr
- W.A. Mozart: Non piu andrai og Se vuol ballare úr
Brúðkaupi Fígarós
- Cesar Frank: Tveir þættir úr Sinfóníu í d-moll
Almennur aðgangseyrir er 3000 kr. en 2000 kr. fyrir
nemendur og eldri borgara. Aðgöngumiðar verða seldir
við innganginn.
|
|
|
|
|
2. janúar 2019 |
|
Fyrsti kennsludagur eftir jólafrí |
|
Starfsfólk Tónlistarskóla Kópavogs
óskar nemendum, aðstandendum þeirra og velunnurum
skólans farsældar á nýju ári og þakkar samstarfið
á árinu 2018. Kennsla að loknu jólaleyfi hefst
samkvæmt stundaskrá föstudaginn 4. janúar 2019. |
|
|
|
|
|
|
|