Óbó
Nemendur í óbóleik eru ekki margir á landinu en
hlutfallslega stór hópur þeirra stundar nám við
Tónlistarskóla Kópavogs. Nemendur hafa í flestum tilvikum
öðlast nægilega líkamsburði til að leika á óbó að loknu
námi í forskóla. Í skólanum er lögð áhersla á að
nemendur öðlist reynslu af að leika í blásarasveit, sem og
með öðrum hljóðfærum.
Námsmarkmið
Í aðalnámskrá tónlistarskóla er gerð grein fyrir þeim
markmiðum sem nemendur eiga að hafa náð við lok grunnáms,
miðnáms og framhaldsnáms í óbóleik. Markmið í grunnnámi
Við lok grunnnáms er miðað við að óbónemendur hafi náð eftirfarandi
markmiðum:
Nemandi
- beiti líkamanum á eðlilegan og áreynslulausan hátt þegar leikið er
á hljóðfærið
- hafi náð eðlilegri munnsetningu
- beiti jöfnum og markvissum fingrahreyfingum
- hafi náð góðum grundvallartökum á tónmyndun á öllu tónsviðinu
frá c' til d'''
- hafi náð allgóðum tökum á þindaröndun
- hafi náð allgóðum tökum á inntónun
- geti gert greinilegar styrkleikabreytingar
- geti leikið bæði bundið og óbundið
- ráði yfir eðlilegri tungutækni miðað við þetta námsstig
- hafi tök á aukafingrasetningum fyrir f (gaffal f) og es (hægri og
vinstri)
Nemandi
- hafi öðlast allgott hrynskyn
- geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni sambærileg þeim sem
fengist var við í fyrri hluta grunnnáms
- hafi þjálfast reglulega í að leika utanbókar
- hafi þjálfast reglulega í að leika eftir eyra
- hafi fengist við skapandi starf frá upphafi námsins
- hafi þjálfast í ýmiss konar samleik
- hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
- hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
- hafi þjálfast reglulega í leik tónstiga og hljóma samkvæmt þessari
námskrá
- hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á grunnprófi samkvæmt
þessari námskrá
Nemandi sýni eftirfarandi atriði í þeim mæli sem eðlilegt getur talist
eftir um það bil þriggja ára nám:
- tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
- blæbrigði og andstæður
- þekkingu og skilning á stíl
- tilfinningu fyrir samleik
- öruggan og sannfærandi leik
- persónulega tjáningu
- viðeigandi framkomu
Markmið í miðnámi
Við lok miðnáms þurfa óbónemendur því að hafa náð eftirfarandi
markmiðum:
Nemandi
- beiti líkamanum á eðlilegan og áreynslulausan hátt þegar leikið er
á hljóðfærið
- hafi tileinkað sér eðlilega og vel þjálfaða munnsetningu
- beiti jafnri og lipurri fingratækni
- hafi náð góðum tökum á tónmyndun á öllu tónsviðinu frá b til
f'''
- hafi náð góðum tökum á þindaröndun
- hafi allgóð tök á vibrato og noti það smekklega
- hafi náð góðum tökum á inntónun
- geti stillt hljóðfærið við annað hljóðfæri
- ráði yfir töluverðu styrkleikasviði
- geti gert greinilegan mun á legato og staccato
- ráði yfir allgóðri tungutækni bæði hvað varðar hraða og
fjölbreytni í túlkun
- geti beitt aukafingrasetningum fyrir f (gaffal f), es (hægri og vinstri)
og helstu trillufingrasetningum
Nemandi
- hafi lært undirstöðuatriði í blaðasmíði
- hafi öðlast gott hrynskyn
- geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni sambærileg þeim sem
fengist var við í fyrri hluta miðnáms
- hafi þjálfast reglulega í að leika utanbókar
- hafi þjálfast í ýmiss konar samleik
- hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
- hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
- hafi þjálfast reglulega í leik tónstiga og hljóma samkvæmt þessari
námskrá
- hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á miðprófi samkvæmt
þessari námskrá
Nemanda hafi gefist kostur á að velja hvort og að hversu miklu leyti hann
sinnir eftirfarandi atriðum:
- leik eftir eyra
- tónsköpun
- spuna
Nemandi sýni eftirfarandi atriði í þeim mæli sem eðlilegt getur talist
eftir sjö til átta ára nám:
- tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
- ýmis blæbrigði og andstæður
- þekkingu og skilning á stíl
- tilfinningu fyrir samleik
- öruggan og sannfærandi leik
- persónulega tjáningu
- viðeigandi framkomu
Markmið í framhaldsnámi
Við lok framhaldsnáms þurfa óbónemendur því að hafa náð
eftirfarandi markmiðum:
Nemandi
- beiti líkamanum á eðlilegan og áreynslulausan hátt þegar leikið er
á hljóðfærið
- hafi tileinkað sér eðlilega og vel þjálfaða munnsetningu
- beiti lipurri og jafnri fingratækni og ráði yfir talsverðum hraða
- hafi náð tökum á öruggri og vel þroskaðri tónmyndun á öllu
tónsviðinu frá b til g'''
- hafi náð mjög góðum tökum á þindaröndun
- hafi náð góðum tökum á vibrato og noti það smekklega
- hafi náð mjög góðum tökum á inntónun
- geti stillt hljóðfærið við annað hljóðfæri
- leiki hreint, kunni grip til lækkunar og hækkunar tóna og geti
aðlagað inntónun í samleik
- ráði yfir víðu styrkleikasviði hvar sem er á tónsviði
hljóðfærisins
- geti gert skýran mun á legato og staccato
- ráði yfir góðri tungutækni bæði hvað varðar hraða og
fjölbreytni
- geti beitt öllum helstu auka- og trillufingrasetningum
Nemandi
- hafi þekkingu og þjálfun í blaðasmíði
- hafi öðlast mjög gott hrynskyn
- hafi kynnst grundvallaratriðum skreytitækni barokktímabilsins
- geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni sambærileg þeim sem
fengist var við á miðprófi
- hafi fengið reglulega þjálfun í að leika utanbókar
- hafi kynnst öðrum meðlim óbófjölskyldunnar, þ.e. englahorni eða
óbó d'amore
- hafi hlotið þjálfun í ýmiss konar samleik
- hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
- hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
- hafi þjálfast reglulega í leik tónstiga og hljóma samkvæmt þessari
námskrá
- hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á framhaldsprófi samkvæmt
þessari námskrá
- hafi undirbúið efnisskrá til flutnings á tónleikum samkvæmt almennum
hluta aðalnámskrár tónlistarskóla, bls. 41-42.
Nemandi sýni með ótvíræðum hætti
- tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
- margvísleg blæbrigði og andstæður
- þekkingu og skilning á stíl
- tilfinningu fyrir samleik
- öruggan og sannfærandi leik
- persónulega tjáningu
- viðeigandi framkomu
|