|
Túba
Í aðalnámskrá tónlistarskóla er gerð grein fyrir þeim
markmiðum sem nemendur eiga að hafa náð við lok grunnáms,
miðnáms og framhaldsnáms í túbuleik.
Markmið í grunnnámi
Við lok grunnnáms eiga túbunemendur að hafa náð
eftirfarandi markmiðum:
Nemandi
- beiti líkamanum á eðlilegan hátt þegar leikið er á
hljóðfærið
- haldi rétt á hljóðfærinu og noti fingurgóma á
ventlana
- beiti jöfnum og markvissum fingrahreyfingum
- hafi náð tökum á eðlilegri og djúpri öndun
- hafi náð góðri og eðlilegri munnsetningu
- hafi náð góðum grundvallartökum á tónmyndun á öllu
tónsviðinu frá ,As til f á B-túbu eða ,B til g á
Es-túbu
- hafi náð allgóðum tökum á inntónun
- geti gert styrkleikabreytingar vel heyranlegar
- ráði yfir eðlilegri tungutækni miðað við þetta
námsstig
- geti leikið bundið og með tungu
Nemandi
- hafi öðlast allgott hrynskyn
- geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni
sambærileg þeim sem fengist var við í fyrri hluta
grunnnáms
- hafi þjálfast reglulega í að leika utanbókar
- hafi þjálfast reglulega í að leika eftir eyra
- hafi fengist við skapandi starf frá upphafi námsins
- hafi þjálfast í ýmiss konar samleik, bæði í stærri
og minni hópum
- hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
- hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
- hafi þjálfast reglulega í leik tónstiga og hljóma
samkvæmt þessari námskrá
- hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á grunnprófi
samkvæmt þessari námskrá
Nemandi sýni eftirfarandi atriði í þeim mæli sem eðlilegt
getur talist eftir um það bil þriggja ára nám:
- tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
- blæbrigði og andstæður
- þekkingu og skilning á stíl
- tilfinningu fyrir samleik
- öruggan og sannfærandi leik
- persónulega tjáningu
- viðeigandi framkomu
Markmið í miðnámi
Við lok miðnáms eiga túbunemendur að hafa náð
eftirfarandi markmiðum:
Nemandi
- beiti líkamanum á eðlilegan hátt þegar leikið er á
hljóðfærið
- beiti öruggum og markvissum fingrahreyfingum
- hafi náð góðum tökum á eðlilegri og djúpri öndun
- hafi náð eðlilegri og vel þjálfaðri munnsetningu
- hafi náð góðum tökum á tónmyndun á öllu
tónsviðinu frá ,F til a á B-túbu eða ,A til b á
Es-túbu
- hafi hlotið þjálfun sem miði að góðu úthaldi
- hafi náð góðum tökum á inntónun
- geti stillt hljóðfærið við annað hljóðfæri
- ráði yfir töluverðu styrkleikasviði og geti gert
andstæður augljósar
- ráði yfir góðri tungutækni bæði hvað varðar hraða
og fjölbreytni í túlkun
- hafi hlotið nokkra þjálfun í notkun tvöfaldrar og
þrefaldrar tungu
- hafi gott vald á að leika bundið og með tungu
- geti leikið varabindingar á sama gripi, þ.e.
náttúrutónabindingar
Nemandi
- hafi öðlast gott hrynskyn
- geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni
sambærileg þeim sem fengist var við í fyrri hluta
miðnáms
- hafi þjálfast reglulega í að leika utanbókar
- hafi þjálfast í ýmiss konar samleik
- hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
- hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
- hafi þjálfast reglulega í leik tónstiga og hljóma
samkvæmt þessari námskrá
- hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á miðprófi
samkvæmt þessari námskrá
Nemanda hafi gefist kostur á að velja hvort og að hversu
miklu leyti hann sinnir eftirfarandi atriðum:
- leik eftir eyra
- tónsköpun
- spuna
Nemandi sýni eftirfarandi atriði í þeim mæli sem eðlilegt
getur talist eftir um það bil sjö til átta ára nám:
- tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
- ýmis blæbrigði og andstæður
- þekkingu og skilning á stíl
- tilfinningu fyrir samleik
- öruggan og sannfærandi leik
- persónulega tjáningu
- viðeigandi framkomu
Markmið í framhaldsnámi
Við lok framhaldsnáms eiga túbunemendur að hafa náð
eftirfarandi markmiðum:
Nemandi
- beiti líkamanum á eðlilegan hátt þegar leikið er á
hljóðfærið
- beiti jafnri og lipurri fingratækni og ráði yfir
talsverðum hraða
- hafi náð mjög góðum tökum á eðlilegri og djúpri
öndun
- hafi tileinkað sér eðlilega og vel þjálfaða
munnsetningu
- hafi náð góðum tökum á öruggri og þroskaðri
tónmyndun á öllu tónsviðinu frá ,E til d'
- hafi náð góðu úthaldi
- hafi náð mjög góðum tökum á inntónun
- hafi kynnst vibrato
- ráði yfir víðu styrkleikasviði hvar sem er á
tónsviði hljóðfærisins
- ráði yfir mjög góðri tungutækni bæði hvað varðar
hraða og fjölbreytni í túlkun
- ráði yfir leikni í notkun tvöfaldrar og þrefaldrar
tungu
- geti leikið varabindingar á sama gripi á öllu
tónsviðinu, þ.e. náttúrutónabindingar
- geti leikið trillur og skrautnótur í samræmi við
tónbókmenntir þessa námsáfanga
Nemandi
- hafi öðlast mjög gott hrynskyn
- hafi fengið reglulega þjálfun í að leika utanbókar
- geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni
sambærileg þeim sem fengist var við á miðprófi
- hafi kynnst nótnalestri í G-lykli
- hafi hlotið þjálfun í ýmiss konar samleik, bæði í
stærri og minni hópum
- hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
- hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
- hafi þjálfast reglulega í leik tónstiga og hljóma
samkvæmt þessari námskrá
- hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á
framhaldsprófi samkvæmt þessari námskrá
- hafi undirbúið efnisskrá til flutnings á tónleikum
samkvæmt almennum hluta aðalnámskrár, bls. 41-42
Nemandi sýni með ótvíræðum hætti
- tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
- margvísleg blæbrigði og andstæður
- þekkingu og skilning á stíl
- tilfinningu fyrir samleik
- öruggan og sannfærandi leik
- persónulega tjáningu
- viðeigandi framkomu
|
|
|