Úr aðalnámskrá tónlistarskóla:

Nemendur

læri og æfist í að setja fram eigin tónhugmyndir, bæði skriflega og leiknar af fingrum fram
læri og þjálfist í að setja saman hefðbundnar eða óhefðbundnar tónsmíðar
FORSÍÐA
SKÓLINN
SKÓLADAGATAL
NÁMIÐ
Hljómsveitir
Samleikur
Tónleikar
Námsmat
Skólareglur
Til foreldra
Samstarfsaðilar
TÓNVER
SKÓLAGJÖLD
KENNARAR
MYNDASAFN
TENGLAR

 

Selló

Í aðalnámskrá tónlistarskóla er gerð grein fyrir þeim markmiðum sem nemendur eiga að hafa náð við lok grunnáms, miðnáms og framhaldsnáms á selló.

Markmið í grunnnámi

Við lok grunnnáms eiga sellónemendur að hafa náð eftirfarandi markmiðum:

Nemandi

  • beiti líkamanum á eðlilegan hátt þegar leikið er á hljóðfærið
    haldi rétt á hljóðfærinu
  • hafi náð tökum á góðu og öruggu bogagripi
  • haldi boga þannig að hann myndi rétt horn við strenginn (90 gráður) og grunnstaða hans á strengnum sé u.þ.b. mitt á milli stóls og gripbrettis
  • beiti boganum á eðlilegan og áreynslulausan hátt
  • hafi náð tökum á eðlilegri stöðu vinstri handar
  • leiki með markvissum og jöfnum fingrahreyfingum
  • hafi náð allgóðum tökum á eftirfarandi bogastrokum: staccato, legato og detaché
  • hafi náð allgóðum tökum á pizzicato
  • hafi náð góðum tökum á tónmyndun í fyrstu fjórum stillingum ásamt áttundarflaututónum
  • hafi náð allgóðum tökum á inntónun
  • sé byrjaður að fást við vibrato
  • geti leikið með greinilegum styrkleikabreytingum
  • hafi náð grundvallartökum á að stilla hljóðfæri sitt sjálfur

Nemandi

  • hafi öðlast allgott hrynskyn
  • kunni góð skil á nótnalestri í bassalykli
  • hafi kynnst lestri í tenórlykli
  • geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni sambærileg þeim sem fengist var við í fyrri hluta grunnnáms
  • hafi þjálfast reglulega í að leika utanbókar
  • hafi þjálfast reglulega í að leika eftir eyra
  • hafi fengist við skapandi starf frá upphafi námsins
  • hafi lagt stund á ýmiss konar samleik
  • hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
  • hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
  • hafi á valdi sínu eftirtalda dúrtónstiga og þríhljóma, tvær áttundir: C, D, A, F
  • hafi á valdi sínu eftirtalda dúrtónstiga og þríhljóma, eina áttund: B, Es
  • hafi á valdi sínu eftirtalda hljómhæfa og laghæfa molltónstiga ásamt þríhljómi, tvær áttundir: a, e, d, g, c
  • hafi á valdi sínu eftirtalinn hljómhæfan laghæfan molltónstiga ásamt þríhljómi, eina áttund: h
  • hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á grunnprófi samkvæmt þessari námskrá

Nemandi sýni eftirfarandi atriði í þeim mæli sem eðlilegt getur talist við lok grunnnáms:

  • tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
  • blæbrigði og andstæður
  • þekkingu og skilning á stíl
  • tilfinningu fyrir samleik
  • öruggan og sannfærandi leik
  • persónulega tjáningu
  • viðeigandi framkomu

Markmið í miðnámi

Við lok miðnáms eiga sellónemendur að hafa náð eftirfarandi markmiðum:

Nemandi

  • beiti líkamanum á eðlilegan og áreynslulausan hátt þegar leikið er á hljóðfærið
  • hafi náð tökum á eðlilegum og áreynslulausum hreyfingum handleggja
  • haldi eðlilega á hljóðfærinu og boganum
  • hafi náð tökum á góðu bogagripi
  • beiti boganum þannig að hann myndi rétt horn við streng og grunnstaða hans sé u.þ.b. mitt á milli gripbrettis og stóls
  • hafi allgott vald á eftirtöldum bogastrokum: detaché, legato, staccato, martelé og spiccato
  • hafi gott vald á pizzicato með hægri og vinstri hendi
  • hafi á valdi sínu mismunandi hraða og styrkleika í bogastrokum
  • hafi náð tökum á mjúkum bogaskiptum
  • hafi náð tökum á jöfnum strengjaskiptum
  • hafi náð tökum á eðlilegri stöðu vinstri handleggjar miðað við þá stillingu og þann streng sem leikið er á hverju sinni
  • hafi náð tökum á hnitmiðaðri fingratækni, þ.m.t. sveigjanlegum þumalfingrum
  • hafi náð tökum á góðri samhæfingu vinstri og hægri handar
  • hafi náð góðri tónmyndun á tónsviðinu frá C upp á g'' í 11. stillingu og hafi nokkurt vald á notkun þumalfingurs
  • hafi náð góðum tökum á inntónun
  • hafi náð tökum á þjálum stillingaskiptum
  • hafi náð góðu valdi á vibrato
  • geti sýnt blæbrigði með mismunandi fjarlægð frá stól og mismunandi bogahraða
  • geti gert styrkleikabreytingar og andstæður augljósar
  • geti stillt hljóðfæri sitt sjálfur

Nemandi

  • hafi öðlast gott hrynskyn
  • kunni góð skil á nótnalestri í bassa- og tenórlykli
  • kunni nokkur skil á nótnalestri í g-lykli
  • kunni skil á skammstöfunum tengdum bogatækni
  • geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni sambærileg þeim sem fengist var við í fyrri hluta miðnáms
  • hafi þjálfast reglulega í að leika utanbókar
  • hafi þjálfast í ýmiss konar samleik, þ.m.t. hljómsveitarleik og kammertónlist
  • hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
  • hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
  • hafi vald á krómatískum tónstiga í þremur áttundum
  • hafi náð góðum tökum á leik allra dúrtónstiga í tveimur til þremur áttundum á tónsviðinu C til g''
  • hafi náð góðum tökum á leik allra hljómhæfra og laghæfra molltónstiga í tveimur til þremur áttundum á tónsviðinu C til g''
  • hafi náð góðum tökum á leik allra dúr- og mollþríhljóma í tveimur til þremur áttundum á tónsviðinu C til g''
  • geti leikið gangandi þríundir á tónsviðinu C til g''
  • geti leikið sexundatvígrip á tónsviðinu C til g''
  • hafi kynnst leik þríundatvígripa
  • hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á miðprófi samkvæmt þessari námskrá

Nemanda hafi gefist kostur á að velja hvort og að hversu miklu leyti hann sinnir eftirfarandi atriðum:

  • leik eftir eyra
  • tónsköpun
  • spuna

Nemandi sýni eftirfarandi atriði í þeim mæli sem eðlilegt getur talist við lok miðnáms:

  • tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
  • ýmis blæbrigði og andstæður
  • þekkingu og skilning á stíl
  • tilfinningu fyrir samleik
  • öruggan og sannfærandi leik
  • persónulega tjáningu
  • viðeigandi framkomu

Markmið í framhaldsnámi

Við lok framhaldsnáms eiga sellónemendur að hafa náð eftirfarandi markmiðum:

Nemandi

  • beiti líkamanum á eðlilegan og áreynslulausan hátt þegar leikið er á hljóðfærið
  • hafi náð tökum á eðlilegri og vel þjálfaðri stöðu beggja handa og samhæfðum hreyfingum
  • ráði yfir góðri bogatækni
  • beiti lipurri og jafnri fingratækni og ráði yfir talsverðum hraða
  • hafi náð tökum á öruggri og þroskaðri tónmyndun á öllu tónsviði hljóðfærisins
  • ráði yfir þjálum bogaskiptum, strengjaskiptum og stillingaskiptum
  • hafi náð mjög góðum tökum á inntónun
  • hafi náð góðum tökum á vibrato og noti það með hliðsjón af stíl
  • ráði yfir víðu styrkleikasviði hvar sem er á tónsviðinu

Nemandi

  • hafi öðlast mjög gott hrynskyn
  • hafi góð tök á nótnalestri í F-, C- og G-lykli
  • geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni sambærileg þeim sem fengist var við á miðprófi
  • hafi fengið reglulega þjálfun í að leika utanbókar
  • hafi þjálfast í ýmiss konar samleik, þ.m.t. hljómsveitarleik og kammertónlist
  • hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
  • hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
  • hafi þjálfast í leik allra dúrtónstiga, hljómhæfra og laghæfra molltónstiga, fjórar áttundir
  • hæfi þjálfast í leik allra dúr- og mollþríhljóma, fjórar áttundir
  • hafi þjálfast í leik allra dúrtónstiga, hljómhæfra og laghæfra molltónstiga í tvígripum í sexundum, þríundum og áttundum, tvær til þrjár áttundir eftir legu
  • hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á framhaldsprófi samkvæmt þessari námskrá
  • hafi undirbúið efnisskrá til flutnings á tónleikum samkvæmt almennum hluta aðalnámskrár, bls. 41-42

Nemandi sýni með ótvíræðum hætti

  • tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
  • margvísleg blæbrigði og andstæður
  • þekkingu og skilning á stíl
  • tilfinningu fyrir samleik
  • öruggan og sannfærandi leik
  • persónulega tjáningu
  • viðeigandi framkomu
 
  Einsöngur
Gítar
Harpa
Suzuki-nám
Fiðla
Víóla
Selló
Kontrabassi
Píanó
Orgel
Harmonika
Trompet/Kornett
Básúna
Barítónhorn
Túba
Blokkflauta
Þverflauta
Óbó
Klarínetta
Saxófónn
Tölvutónlist
Tónfræðagreinar
Tónlistarsérkennsla

 

Tónlistarskóli Kópavogs | Tónlistarhúsi Kópavogs | Hamraborg 6 | 200 Kópavogur | Sími 578 5700 | tonlistarskoli@tonlistarskoli.is